top of page
Writer's pictureHilda Karen

Deloitte gæðingalistin

Það er falleg og spennandi grein framundan í deildinni okkar og opið fyrir skráningar í Sportfeng til miðnættis föstudaginn 8. mars. Deloitte styrkir þetta mót á glæsilegan hátt og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það.





Óskalagalistinn er opinn og mikilvægt að setja lögin inn sem fyrst svo við getum skipulagt spilunarlistann fyrir sunnudaginn. Athugið að lagið sé nógu langt fyrir sýninguna ykkar.


Hér fyrir neðan er samantekt á helstu atriðum gæðingafiminnar:


  1. Tími og tónlist byrja þegar knapi hneigir sig eða í síðasta lagi þrjátíu sekúndum eftir að knapi kemur inn á völlinn. Þulur gefur merki þegar ein mínúta er eftir af sýningartíma.

  2. Tímamörk eru 5 mínútur max. Athugið að velja lag sem passar ykkar sýningu.

  3. Passa að dómarar hafi gott sjónarhorn á ykkur gera æfingarnar ykkar.

  4. Knapi lýkur sýningu með því að hneigja sig eins og alltaf.

  5. Ekki verða riðin úrslit.

  6. Dómarar verða 5 og því dettur hæsta og lægsta einkunn út eins og venjulega í íþróttakeppni.

  7. Keppendur þurfa að senda æfingablöðin inn fyrir miðnætti föstudagskvöldið 24. mars.

  8. Skrá þarf líka í Sportfeng eins og venjulega fyrir miðnætti 24. mars.

  9. Lesið vel reglur um gæðingalist - útg. mars 2024. 

  10. Frjálsar æfingar samþykktar af faghópi 2024 eru hér.


Hér fyrir neðan er æfingalistinn í Excel skrá sem þið þurfið að hlaða niður, fylla inní og senda á hilda.gardars@gmail.com. Þið fyllið inn í efsta hluta skjalsins, þ.e. nafnið ykkar og hestsins og æfingarnar sem eru í fellilista, sjá mynd:





379 views0 comments

Comments


bottom of page