top of page
  • Writer's pictureHilda Karen

Opið fyrir umsóknir 2022-2023

Meistaradeild Líflands og æskunnar verður haldin í sjöunda sinn veturinn 2023. Þátttakendur eru unglingar á aldrinum 13-17 ára (fæðingarár 2006-2010).


Áhugasamir knapar eru hvattir til að sækja um og skila inn keppnisárangri ársins 2022. Allir sækja um sem einstaklingar en þátttakendur velja sig sjálfir saman í lið.


Hvert lið skipar fjóra knapa og keppa þeir allir í öllum keppnisgreinum og reynir það nokkuð á hestakost og er töluverð skuldbinding. Þrír efstu liðsmennirnir telja til stiga í hverri grein, nema á síðasta mótinu, þar telja stig allra knapa.


Keppt verður í: fjórgangi V1, fimmgangi F1, tölti T1, gæðingafimi, slaktaumatölti T2 og gæðingaskeiði PP1.


MLÆ umsókn 2022-2023
.docx
Download DOCX • 309KB

Umsóknareyðublað má finna hér fyrir ofan og skal umsækjandi hlaða því niður/vista á sinni tölvu, fylla það út og senda inn. Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2022 og skal senda umsóknir á netfangið: jonadisbraga@gmail.com


Reglur deildarinnar verða kynntar vel á fundi allra þátttakenda og aðstandenda þeirra í haust og þátttakendur skrifa undir knapasamning. Þar verða einnig öll liðin kynnt til leiks.


Stjórn Meistaradeildar Líflands & æskunnar

867 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page