Meistaradeild Líflands og æskunnar verður haldin í fjórða sinn vorið 2020.
Þeir knapar sem fæddir eru árið 2002 til 2007 hafa þátttökurétt í deildinni (elsti árgangur í barnaflokki og sá yngsti í ungmennaflokki árið 2020).
Áhugasamir knapar eru hvattir til að sækja um og skila inn keppnisárangri ársins 2019. Allir sækja um sem einstaklingar og þátttakendur velja sig sjálfir saman í lið.
Hvert lið skipar fjóra knapa og keppa þeir allir á öllum mótum vetrarins en þrír efstu liðsmennirnir telja til stiga, nema á síðasta mótinu, þar telja stig allra knapa.
Keppt verður í: fjórgangi V1, fimmgangi F1, tölti T1, gæðingafimi, slaktaumatölti T2 og flugkeiði PP1.
Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2019 og skal senda umsóknir og keppnisárangur 2019 á netfangið: jonadisbraga@gmail.com
Reglur deildarinnar verða kynntar vel á fundi allra þátttakenda og aðstandenda og þar verða einnig öll liðin kynnt til leiks. Dagsetningar og staðsetning deildarinnar verður auglýst síðar.
Stjórn Meistaradeildar Líflands & æskunnar
Comments