Team Hofsstaða/Sindrastaða skipa fjórir vaskir knapar, tveir úr Garðabæ og tveir norðan úr Húnavatnssýslu. Í liðinu er einn nýliði en að öðru leyti er liðið óbreytt frá í fyrra þegar það lenti í 3. sæti liðakeppninnar.

Nafn: Guðný Dís Jónsdóttir
Félag: Hestamannafélagið Sprettur
Markmið: Koma vel undirbúin og gera mitt allra besta.
Lífsmottó: Þeir skora sem þora.
Fyndnasti hestamaðurinn: Það er klárlega hann Ævar Örn, fáir sem toppa þann meistara! Hvað verður þú að gera eftir 10 ár? Allt galopið.

Nafn: Elva Rún Jónsdóttir
Félag: Hestamannafélagið Sprettur
Markmið: Gera betur en í fyrra og koma vel undirbúin.
Lífsmottó: Þetta reddast
Fyndnasti hestamaðurinn: Það verður klárlega hann frændi minn Kristinn Hugason (a k a Kiddi Huga).
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár? Ætli maður verði ekki bara í skóla eða vinnu, hver veit.

Nafn: Aðalbjörg Emma Maack
Félag: Hestamannafélagið Þytur
Markmið: Komast í úrslit á stórmótum.
Lífsmottó: Komdu fram við aðra eins og þú vilt að sé komið fram við þig.
Fyndnasti hestamaðurinn: Guðmar Hólm
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár? Vera á Sindrastöðum og þjálfa hesta og ná mér í menntun í hestum.

Nafn: Guðmar Hólm Ísólfsson
Félag: Hestamannafélagið Þytur
Markmið: Vera valinn til að keppa á mótum landsliðsins.
Lífsmottó: Stefndu hátt en lifðu í núinu.
Fyndnasti hestamaðurinn: Konráð Valur Sveinsson.
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár? Vera að þjálfa og sýna hesta.
Comments