Opið fyrir umsóknir í Meistaradeild Líflands og æskunnar

Þátttöku aldur er 14 – 17 ára á keppnisárinu og miðast deildin við unglingaflokk (fædd 2010- 2013). Áhugasamir knapar eru hvattir til að sækja um og skila inn keppnisárangri af löglegum mótum ársins 2026. Allir sækja um sem einstaklingar en þátttakendur velja sig sjálfir saman í lið að inngöngu lokinni.
Hvert lið er skipað fjórum knöpum og þurfa þrír knapar að keppa í hverri keppnisgrein, þó fjórða knapa sé frjálst að keppa. Þrír efstu knapar telja til stiga fyrir sitt lið. Það að keppa í öllum greinum reynir mjög á hestakost, er krefjandi, en jafnframt frábær reynsla og hvetjum við knapa til að taka þátt í sem flestum greinum.
Keppt verður í: Fjórgangi V1 – Fimmgangi F1, Gæðingalist- Tölti T1, slaktaumatölti T2 -gæðingaskeiði PP1 og 100 m skeiði.
Umsóknareyðublað má finna HÉR
og skal umsækjandi hlaða því niður og vista í sinni tölvu, fylla það út og senda inn. Umsóknarfrestur er til og með 15 október og skal senda umsóknina á netfangið: meistaradeildaeskunnar@gmail.com.




Comments