Sýnikennsla með Julie Christiansen
- Hilda Karen
- Feb 12, 2020
- 1 min read
Heimsmeistarinn í slaktaumatölti, hin danska Julie Christiansen, ætlar að vera með sýnikennslu í TM höllinni í Víðidal áður en keppni hefst í slaktaumatölti í Meistaradeildinni. Sýnikennslan hefst kl. 18:00.
Stjórn Meistaradeildar hefur boðið okkur í Meistaradeild Líflands og æskunnar að koma á sýnikennsluna og njóta þess að horfa og hlusta á Julie.
Comentários