top of page
  • Writer's pictureHilda Karen

Útilífstöltið á sunnudaginn

Það er stutt á milli móta að þessu sinni og næsta mót er tölt T1 á sunnudaginn kemur, þann 17. mars. Opið er fyrir skráningar í Sportfeng og lagalistinn er líka opinn, svo knapar eru hvattir til að henda inn skráningum sem fyrst.


ÚTILÍF býður upp á þetta mót ásamt LÍFLANDI sem er aðalbakhjarl mótaraðarinnar.


Eins og fyrr, þá hefst mótið kl. 12:oo og verður dagská dagsins svona:

Kl. 11:00 - Knapafundur

Kl. 11:45 - Upphitunarhestur

Kl. 12:00 - 1. - 22. hestur

Kl. 13:10 - 15 mín hlé

Kl. 13:25 - 23. - 44. hestur

Kl. 14:30 - 20 mín hlé

Kl. 14:50 - B-úrslit 6.-10. sæti

Kl. 15:10 - A-úrslit 1.-5. sæti


Tölt T1 fer þannig fram:

Forkeppni:

  1. Keppni hefst á miðri skammhlið, riðinn er einn hringur á hægu tölti upp á hvora hönd sem er. Hægt niður á fet á miðri skammhlið og skipt um hönd.

  2. Riðið er af stað á miðri skammhlið á hægu tölti og riðinn einn hringur með greinilegum hraðabreytingum á langhliðum.

  3. Frá miðri skammhlið er riðinn einn hringur á yfirferðartölti.


Úrslit:

  1. Úrslitaknapar ríða saman samkvæmt fyrirmælum þular. Þeir ríða sama verkefni og framkvæmt er í forkeppni en upp á báðar hendur. Komi til atkvæðagreiðslu um hönd sem knapar ríða fyrst upp á og atkvæði falla jafnt, vegur atkvæði efsta knapa úr forkeppni tvöfalt.

  2. Í úrslitum T1 skal gefa einnar mínútu hlé þegar skipt er um hönd í hraðabreytingum og tveggja mínútu hlé þegar skipt er um hönd á yfirferð. Þulur skal tilkynna knöpum þetta og biðja þá að láta hesta sína feta afslappað þennan tíma.


Kaffihúsið verður opið í reiðhöllinni með frábærar veitingar á boðstólum og MLÆ býður gesti og gangandi velkomna að líta við, fá sér kaffi og kruðerí á kaffihúsinu og kíkja á hestaíþróttamenn framtíðarinnar í keppni um leið.


Spurningar um keppnina: Svafar Magnússon yfirdómari

Spurningar um skráningar: Hilda Karen tölvuvinnsla


167 views0 comments
bottom of page