top of page
  • White Facebook Icon

Umsóknir veturinn 2025

  • gudbjorgannag
  • Sep 1
  • 1 min read

Updated: Sep 2

Meistaradeild Líflands og æskunnar verður haldin í níunda sinn veturinn 2025.


Sú breyting verður nú á deildinni að þátttöku aldur verður hækkaður úr 13 ára í 14 ára og miðast deildin þá við unglingaflokk,14-17 ára á keppnisárinu (fædd 2009-2012).


Áhugasamir knapar eru hvattir til að sækja um og skila inn keppnisárangri af löglegum mótum ársins 2025. Allir sækja um sem einstaklingar en þátttakendur velja sig sjálfir saman í lið að inngöngu lokinni.


Hvert lið er skipað fjórum knöpum og keppa allir í öllum keppnisgreinum sem reynir þó nokkuð á hestakost og er mikil og krefjandi skuldbinding, en jafnframt reynsla.


Keppt verður í: Fjórgangi V1 – Fimmgangi F1 - Gæðingalist- Tölti T1, slaktaumatölti T2 og gæðingaskeiði PP1.



Umsóknareyðublað má finna hér að ofan og skal umsækjandi hlaða því niður og vista í sinni tölvu, fylla það út og senda inn. Umsóknarfrestur er til og með 20 september 2025 og skal senda umsóknina á netfangið: meistaradeildaeskunnar@gmail.com


Reglur deildarinnar verða kynntar vel á fundi allra þátttakenda og aðstandenda þeirra í haust, þar sem lið verða kynnt til leiks  og keppendur skrifa þá einnig undir knapasamning um þátttöku í deildinni.

 

Okkur vantar einnig öflugt fólk í stjórn þannig að ef einhver hefur áhuga á og vill bjóða fram krafta sína, þá endilega heyrið í okkur.


Stjórn Meistaradeild Líflands og æskunnar.

 
 
 

© 2020 Meistaradeild Liflands og æskunnar. Allur réttur áskilinn.  Hafðu samband við okkur!

bottom of page